KVENNABLAÐIÐ

F L E N S U B A N I: Styrkjandi mangó- og engiferboost með sítruskeim

Þessi er alger flensubani, stútfullur af næringarefnum og til þess gerður að styrkja ónæmiskerfið. Mangóávöxturinn myndar skemmtilegt mótvægi við ferska engiferrótina, sem svo aftur er þekkt fyrir að vinna mót sýkingum í kinn- og ennisholum og róar viðkvæman maga. Dásamlegur bætiefnaboost sem hleypir blóðrásinni af stað!

screenshot-simplegreensmoothies.com 2015-08-24 07-23-43

UPPSKRIFT:

1 bolli sellerí – fínt skorið

1 bolli fersk steinselja

2 bollar vatn

1 agúrka, afhýdd og niðursneidd

Bútur af fersku engiferi, afhýddur og smátt rifinn

3 bollar ferskt mangó

1 sítróna, afhýdd

Setjið fyrst sellerí, steinselju og vatn í blandarann og þeytið þar til blandan er orðin jöfn og áferðarfalleg. Setjið nú í hin innihaldsefnin og þeytið saman aftur. screenshot-cavaloruniversity.com 2015-08-24 07-30-04

@simplegreensmoothies

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!