Ok, við rákumst á þetta í Elle og þetta er snilld. Á myndinni hér að neðan er fallega förðuð kona en það vantar punktinn yfir i-ið, sérstaklega við þennan áberandi varalit.
Þá er það blauti Æ-LÆNERINN … sem gerir herslumuninn og í Elle var kennt þetta frábæra trikk til að gera þetta fullkomið og koma í veg fyrir að maður líti út eins og járnbrautaslys. Allt sem þarf er límband …já límband!
1. Byrjaðu á því að ná þér í límbandsbút ca. þriggja sentimetra langan og líma hann fyrst á hendina á þér. Þetta er gert til að veikja límbandið aðeins til að koma í vef fyrir að það særi viðkvæma húðina í kringum augun.
2. Límdu límbandið við neðri augnhárin og láttu það vísa upp að gagnauganu. Varastu að láta límbandið vísa að enda augabrúnarinnar því þá verður Eye-linerinn meira í anda Amy Winehouse sem er stundum flott en ekki markmiðið hér. Hér er verið að fara klassísku leiðina.
3. Byrjaðu við mitt augnlokið þar sem línan á að vera þykkust og litaðu með ákveðnum strokum. Notaðu litla fingur til að styðja við fyrir öruggar strokur með blauta augnlitnum.
4. Notaðu límbandið sem reglustriku og fylgdu því vel og ekki hafa áhyggjur þótt smávegis smitist á límbandið. Látið línuna þynnast út eftir því sem nær dregur enda hennar.
5. Fjarlægðu límbandið og líttu á sköpunarverkið.
6. Fullkomið ekki satt?