Margar af okkur þvo hárið sitt á tveggja til þriggja daga fresti en sumar vildu gjarnan hafa lengra á milli. Á þessum dögum náum við ekki að leyfa hárinu að liggja frjálst niður, það er kannski orðið pínu fitugt á öðrum degi og oft verður uppgjöf á þeim þriðja og þá er það þvegið.
Hér eru 5 hárgreiðslur sem eru fullkomnar og jafnvel enn betri en þegar hárið er tandurhreint.
Taktu það upp í háan hnút, togaðu vel í það í allar áttir og þú ert tilbúin í daginn.
PHOTO CREDIT: Pinterest
Þegar kemur að fiskifléttu finnst okkur hún fallegri aðeins toguð í sundur. Slepptu nokkrum lokkum og hárgreiðslan er klár.
PHOTO CREDIT: Treasures and Travels
„Franskur“ snúður finnst okkur alltaf virka aðeins of frúarlegt í hreint hár. Ýfðu hárið aðeins áður en þú snýrð hárinu upp í franskan snúð og dragðu nokkra lokka fram í andlitið
PHOTO CREDIT: Twist Me Pretty