Viðurstyggilegt vonskuverk hundaeiganda nokkurs í París heppnaðist nær því, ef ekki hefði verið fyrir árvökulan gæludýraeiganda sem rak augun í niðurgrafinn hund á byggingarsvæði nú sl. sunnudag.
Enginn vafi leikur á að um viljaverk var að ræða, en það var maður að nafni Pedro Dinis sem hafði lagt upp í morgungöngu með heimilishundinn, sem kom auga á vesalings dýrið, sem niðurgrafið upp að herðakamb, beið dauða síns – rígbundið, máttvana og sennilega afar vonlítið um björgun.
Um fáfarna gönguleið í einu af fjölmörgum úthverfum Parísar var að ræða, en hefði Pedro ekki átt leið hjá – er ógerlegt að segja hvort hundinum hefði nokkru sinni verið bjargað – eða hvort dýrið hefði mætt grimmilegum örlögum þeim sem fyrrum eigandi hans augljóslega ætlaði honum; að vera kviksettur á byggingarsvæði og bundinn tryggilega niður svo dýrinu tækist ekki að flýja.
Sjálfur deildi Pedro ljósmyndaröðinni sem fylgja með greininni, á Facebook síðu sinni og sagði meðal annars í athugasemd:
Vesalings dýrið var svo kirfilega niðurgrafið að ekkert sást nema höfuðið. Það var meira að segja erfitt að áætla hversu mikill jarðvegur væri kringum hundinn. Ég var bara á réttum stað og á réttum tíma til að gerast lífgjafi.
Pedro brást samstundis við og hóf umhugsunarlaust að grafa upp deyjandi dýrið, í þeirri von að bjarga mætti lífi hundsins.
Heimilishundur Pedro lét heldur ekki sitt eftir liggja og reyndi sitt besta, svo hjálpa mætti vesalings hundinum upp úr viðbjóðslegri gröfinni.
Ekki leið á löngu þar til Pedro gerði sér ljósa grein fyrir því að ekki aðeins hafði dýrið verið grafið lifandi í jörðu, heldur hafði reipi einnig verið sett um háls hundsins og rígfest svo enginn vafi léki á því að ætlunarverkið tækist.
Pedro gróf dýrið upp með berum höndum, þar sem hann tók engin verkfæri með sér í morgungönguna og gat ekki hugsað sér að fara frá vesalings hundinum í þessu ásigkomulagi. Verkið gekk því hægt, en örugglega og smám saman tókst Pedro að frelsa dýrið úr ánauðinni.
Hundurinn fékk vatn úr drykkjarflösku Pedro þegar tekist hafði að losa um jarðveginn sem þrengdi að dýrinu og hefði dregið hundinn til dauða, ef engan hefði borið að – en dýrið var í framhaldinu flutt rakleiðis á dýraspítala, þar sem læknar hafa meðhöndlað tíu ára gamlan rakkann við losti og vökvaskorti.
Að öllum líkindum hefði verið ógerlegt að finna þann sem ábyrgur var fyrir dýraníðinu ef ekki hefði verið fyrir húðflúr á líkamanum sem vísaði á eiganda hans. Þessu greindi franska dagblaðið Le Parisian meðal annars frá en lögreglumenn gátu þannig haft upp á eigandanum, sem gaf þá skýringu að dýrið hefði hlaupist á brott. Þar sem hundurinn er orðinn tíu ára gamall og er þjakaður af gigt, tók lögreglan skýringarnar ekki trúanlegar og hefur eigandinn verið ákærður fyrir dýraníð. Ef eigandinn verður fundinn sekur um athæfið, má reikna með að hann hljóti allt að tveggja ára fangelsisdóm og verði gert að greiða því sem nemur 4 milljónum íslenskra króna.
Hér má sjá nýlega ljósmynd af hundinum, þar sem sjá má að dýrið er við mun betri heilsu eftir stutta veru á dýraspítalanum þar sem hann dvelur nú á og fær bestu hugsanlegu aðhlynningu:
Ljósmyndir: Pedro Dinis@Facebook