Æstir aðdáendur Lenny Kravitz fengu heldur meira en þeir óskuðu eftir á tónleikum rokkgoðsins síðastliðið mánudagskvöld í Stokkhólmi. Mynd náðist af atvikinu, sem er ótrúlegt og deildi aðdáandi samstundis skotinu á Twitter, en ljósmyndin – sem sjá má hér að neðan – gengur ljósum logum á netinu.
Lenny, sem íklæddur var níðþröngum leðurbuxum á sviði tók skarpa dýfu í miðju lagi, kastaði sér niður á hnén og viti menn; leðurbuxurnar rifnuðu utan af goðinu og út úr buxunum óð veigamikill göndull mannsins – frjáls og óhindraður.
Ljósmyndina sjálfa má sjá neðar í grein:
Hundruðir aðdáenda Kravitz urðu vitni að atvikinu og náði einn tónleikagesturinn ljósmynd af Lenny í miðri hnébeygju og birti á Twitter, þar sem ljósmyndin stendur enn uppi – en Lenny, sem orðinn er 51 árs gamall lét sér hins vegar ekki bregða heldur hélt ótrauður áfram að flytja lagið eins og sönnum fagmanni sæmir.
Aðdáandinn deildi einfaldlega myndinni á Twitter, sem sjá má hér að neðan með orðunum:
Lenny Kravitz’s #penis pops out onstage in Stockholm:
Ekki fylgir sögunni hvaða lag Lenny var að flytja þegar slysið varð, en Kravitz greip einfaldlega fyrir klofið, gekk í átt að tjaldabaki um leið og færi gafst og skipti í framhaldinu um buxur á milli laga – og hélt áfram tónleikahaldi, svellkaldur og yfirvegaður.