Þegar Christine Quinn bað ömmu sína Betty sem er 89 ára um að vera brúðarmær í brúðkaupi sínu var sú gamla heldur hikandi en sló til og varð á endanum hrókur alls fagnaðar í brúðkaupinu.
“ Hún sprengdi alla úr hlátri með spakmælum sínum og fyndnum kommentum á brúðkaupsdaginn“:
sagði brúðurin Christine í viðtali við Huffington Post.
“ Hún dansaði alla nóttina og augnablikið þegar hún dansaði við ömmu mannsins míns, var eftirminnilegasta atriði kvöldsins. þetta var ótrúlegt!“
Maður er eins gamall og maður vill, sagði amman Betty with barnabarn sitt, og í dag líður mér eins og ungri manneskju!
„Við eldumst öll en það er engin ástæða til að fullorðnast!“