Tímaritið National Geographic hefur tilnefnt sigurvegara í ljósmyndasamkeppni ferðalanga en alls bárust yfir 17,000 ljósmyndir hvaðanæva úr heiminum. Hér eru þær bestu að mati dómnefndar:
Fyrsta sæti: Hvala-hvíslararnir
Kafað með hnúfubak og kálfi hennar í Roca Partida í Revillagigedo, Mexiko. (Ljósmyndari: Anuar Patjane)
Annað sæti: Verkamenn
Þessir menn sem vinna við malargröft líta út um gluggann á hvíldarherbergi sínu. Chittagong, Bangladesh. (Ljósmyndari: Faisal Azim)
Þriðja sæti: Kameldýra kappreiðar
Kameldýrakappreiðar í Oman ganga út á að sýna styrk og hraða dýranna (Ljósmyndari: Ahmed Al Toqi)
Viðurkenningasæti: Nótt í Deadvlei
Ljósmyndin fangar ótrúlegan stjörnubjartan himinn og sjálfa vetrarbrautina. (Ljósmyndir: Beth McCarley)
Viðurkenningasæti: Öndin fönguð
Tveir drengir fanga önd í Nong Khai héraði í Tælandi. (Ljósmyndari: Sarah Wouters)
Viðurkenningasæti: Rúmenía, land ævintýranna.
Frostið leggst yfir þorpið Pestera (Ljósmyndari: Eduard Gutescu)
Viðurkenningasæti: Heiðarbúarnir
Slegið með gamla laginu í Póllandi (Ljósmyndari: Bartłomiej Jurecki)
Viðurkenningasæti: Hvítir flóðhestar
Ljósmyndarinn reyndi heila nótt að fanga fegurð þessara hvítu flóðhesta sem eru í útrýmingarhættu en ekkert gekk. þegar hann vaknaði höfðu þrír þeirra samfnast saman nálægt gististað hans í Ziwa Rhino friðlandinu í Úganda. (Ljósmyndari: Stefane Berube)
Viðurkenningasæti: Indversk glíma
Kushti er indversk glímulist þar sem keppendur klæðast lendarskýlum og berjast í hálfgerðum moldargryfjum. (Ljósmyndari: Alain Schroeder)
Viðurkenningasæti: Himna gufubaðið
Gufubað í 2,800 metra hæð í ítölsku ölpunum. (Ljósmyndari: Stefano Zardini)