Nýr þáttur fer að hefja göngu sína í Bandaríkjunum sem er byggður upp með hefðbundnu raunveruleikaþátta sniði eins og American Idol, America’s Got Talent o.fl. Nema hvað að þessi þáttur gengur út á það að leita að næstu klámmyndastjörnu Bandaríkjanna.
Einhver myndi halda að slíkt væri ómögulegt í sjónvarpi sökum óviðeigandi myndefnis en hér tekst framleiðendum að búa til þátt sem dansar alveg í línunni.
Sextán keppendur byrja keppni, átta strákar og átta stelpur og mun svo almenningur í Ameríku kjósa vinningshafana sem fá verðlaun sem eru ekki af verri endanum, $1.000.000 eða um 120.000.000 kr.
Hér er að finna stiklu úr þáttunum og frekari upplýsingar um þættina.