Yndislegi sumarsmellurinn Like I’m Gonna Lose You með Megan Trainor og John Legend hlýtur að slá öll met í hjúfri, melódískri elsku og fögrum fyrirheitum.
Reyndar er örlítið skemmtilegt að bera John Legend augum fullklæddan úti í rigningunni eftir bráðfyndna ljósmynd sem Chrissy Teigen, eiginkona látúnsbarkans lét flakka á Instagram í þeim eina tilgangi að mótmæla ströngum reglum ritskoðunar. En Megan Trainor fer hér líka með skemmtilegan leik.