Það er gaman að búa til sína eigin frostpinna og þá má nota hverslags djús sem þér líkar. Límónaði, appelsínudjús, eplasafa, ylliblómadjús (fæst í Ikea) eru allt góðir kostir. Svo má gera fullorðins frostpinna og nota vodka í límónaði eða vodka í hindberjadjús.
Láttu hugmyndaflugið reika og prófaðu þig áfram…EN það setur punktinn yfir I-ið að skreyta frostpinnana með ætum blómum og mörg íslensku blómin eru æt.
Blóm sem má nota eru t.d: Sóleyjar, fjólur, morgunfrúr, skjaldfléttur, fíflablóm, smári, hibiscus rós, maríustakkur, ljónslappi, lavender, blóðberg, yllir og stjúpur. Blómin vaxa bæði villt og í görðum víða um land.