Þetta er afar einfalt, ótrúlega gott og saðsamt. Ekkert kjaftæði og hollusta í hverjum bita! Ferskar appelsínurnar og nærandi avókadóið eiga eftir að koma þér skemmtilega á óvart! Tilvalið í hádgegismat um helgina eða sem léttur kvöldverður.
Salat:
1. Avókadó flysjað og skorið í sneiðar.
2. Appelsínur hýðislausar skornar í sneiðar.
3. Handfylli af basil, klettasalati og myntu
4. Geitaostur
5. Fræ úr pomengrante ef þú færð þau einhvers staðar.
salatdressing:
2 matsk. sítrónusafi
2 matsk. ólívuolía
1 matsk. hunang
1/4 tsk salt og svartur pipar
Setjið allt sem á að fara í salatið í góða skál. Setjið allt sem fer í dressinguna í skál og þeytið saman með gaffli. Setjið dressinguna yfir salatið og myljið geitaostinn yfir. Skreytið með pomengranate fræum og njótið hvers bita!