Kanill er frábært krydd og öll þekkjum við það út á grjónagrautinn en kanill er líka notaður í matargerð og svo er hann meinhollur. Kanill hefur víst góð áhrif á blóðsykurinn og lækkar kólestrólið. Það sakar alla vega ekki að prófa!
- Blandið saman 1 tsk. af fljótandi hunangi og 1 tsk af kanil í bolla. Hellið soðnu vatni yfir.
- Hrærið vel saman.
- Drekkið þetta á morgnanna áður en þið fáið ykkur morgunmat og komið blóðsykrinum í jafnvægi.