Þeir eru svo dónalegir þarna á Buzzfeed, að það er engu lagi líkt. Eins og freistingarnar séu ekki nægar meðan maður reynir að troða sér i bikiníið. En sumar freistingar eru jafnvel þess eðlis að ekki á að standast þær … eins og til dæmis þessar beikonvöfðu Mossarella stangir, en á Buzzfeed Food segir einfaldlega:
Taktu fram frosnar Mossarella stangir, vefðu einni beikonræmu um hverja og leggðu á bökunarpappír. Settu inn í ofn á plötu og bakaðu við 200 gráður í 15 mínútur, eða þar til beikonið er fullsteikt og osturinn er bráðnaður. Við mælum með góðri salsasósu til bragðauka.
Og við spyrjum nú … er nokkuð til sem heitir of mikið beikon?