Þessi ís er óvanalegur og mjög bragðgóður. Tilvalinn á hlýjum sumardegi. Svo er hann meinhollur enda avókadó stútfullt af næringarefnum. Hann er líka svo ótrúlega fallegur á litinn.
5 dl mjólk
4 eggjarauður
2 dl rjómi
2 dl sykur
fræ úr hálfri vanillustöng
3 þroskað avókadó
1 þroskuð pera
1 tsk sítrónusafi
Svona ferðu að:
1. Setjið mjólk, rjóma og vanillufræ saman í pott og látið suðu koma upp og takið af hellunni. Látið kólna eilítið.
2. Þeytið eggjarauðurnar og hrærið mjólkurblöndunni saman við. Setjið allt aftur í pottinn.
3. Hitið varlega og hrærið stöðugt í svo blandan skilji sig ekki. Takið af og kælið.
4. Setjið niðurskorið avókadó, perurnar og sítrónusafan í matvinnsluvél og púlsið saman.
5. Hrærið saman avókadó/peru blöndunni og kældu mjólkurblöndunni. Hellið í form og inn í frysti. Hrærið í forminu á 20 mínútna fresti fyrst klukkutímann.
Ef þú átt ísvél þá skellirðu þessu í hana!