Og þá hefur Madonnu eina ferðina enn tekist að gera allt VITLAUST í poppheiminum! Nýtt myndband með dívunni kom út nú í dag og viti menn, einungis er hægt að horfa á opinberu útgáfuna gegnum tónlistarveituna TIDAL sem einmitt er fáanleg á íslenskum markaði.
Um er að ræða lagið Bitch I’m Madonna og bókstaflega logar af stjórstjörnum; Nicki Minaj, Katy Perry, Miley Cyrus, Beyoncé, Alexander Wang, Kanye West og fleiri stórum nöfnum í bransanum. Heimsmiðlar loga, allir vilja koma höndum yfir myndbandið og hér er bootleg útgáfa sem birtist á YouTube í dag!