Þetta er æðislegur og frískandi drykkur og hentar frábærlega til að gæða sér á þegar maður vaknar og er í stuði fyrir eitthvað framandi og bragðgott!
1/2 tsk kardómommuduft eða dropar
2 vel þroskuð mangó
500 g hrein jógúrt
100 g klakar
fjótandi hunang
- Allt sett í mixerinn og dansaðu inn í daginn! Til dæmis við lagið Dilli Wali Girlfriend!