Þessi er svo hressandi, ferskur sítrusinn vekur þig og grænkálið og bananinn gera þennan þeyting alveg sérstaklega rjómakenndan og unaðslega góðan. Við vildum stytta okkur leið og pakka eins mikið af næringarefnum og mögulegt væri hægt í þennan góða ‘Vektu-mig’ drykk svo við stálumst til að blanda í hann Superfoods Supergreens blöndunni frá Nutribullet. Blandan fæst í Kosti og pakkningin er ansi drjúg, því þú notar bara teskeið í hvern drykk. Ætti að duga í allavega 30 drykki sem er snilld!
Í blöndunni finnurðu klórella, spírulína, hveitgras and alfalfa sem einhverjar mögnuðustu grænu súperhetjurnar sem finna má í súper-fæðu flokknum.
Þetta er andoxunarsprengja og fyllir þig af grænni orku beint úr náttúrunni og án allra aukaefna! Heilbrigði…hér kem ég!
Sítrónu og grænkálssprengja!
1 handfylli af grænkáli
¼ Sítróna
¼ Límóna
1 Banani
1 tsk hunang eða önnur sæta
1 Tsk Superfoods Supergreens ( Fæst í Kosti)
1 ½ bolli kókosvatn