Á Billboard tónleikaverðlaununum tilkynnti Oliver Rousteing yfirhönnuður Balmain tískuhússins samstarf Balmain og H&M.
Með honum á sviðinu voru fyrirsæturnar Kendall Jenner og Jourdan Dunn. Öll voru þau klædd í Balmain x H&M fatnað og sýndu þar með fyrstu flíkurnar sem komu út úr samstarfinu.
Ótrúlega spennandi og nú er bara að bíða fram í nóvember.