Þessi geislar af vori og guðdómlegum jurtailm. Spínatið er járnríkt og bananabitarnir eru trefjaríkir, en appelsínan og jarðarberin eru auðug af C-vítamíni. Alger kvefbani og sjúklega góð orkusprengja í upphafi nýrrar viku.
Frú Sykurmoli á ekki heiðurinn að þessari, sem er upprunin frá ægilega fínum heilsubloggara úti í hinum stóra heimi. En uppskriftin er freistandi og forvitnileg, að ekki sé minnst á jarðarberja- og spínatkombóið sem fer ægilega vel í maga með þrýstinni appelsínu og velmegandi banana.
HRÁEFNI:
1 væn appelsína, afhýdd og skorin í búta
½ stór banani, skorinn í sæmilega bita
6 stór og bústin jarðarber
2 hnefafylli af fersku spínati
1 ½ dl hrein jógúrt
1 hnefafylli af ísmolum
Smelltu öllum innihaldsefnum í blandarann og hrærðu saman þar til græna undrið tekur á sig rennilega mynd. Helltu í glös og berðu fram. Hægt er að frysta helming í loftþéttu íláti, en athugið að taka frosinn drykkinn fram hálftíma áður en ætlunin er að drekka hann. Einnig er hægt að geyma drykkinn yfir nótt í kæli.
Einnig tilvalinn fyrir tvo!
Heimild: twopeasandtheirpod.com