Hollensku listamennirnir Lernert & Sander eiga heiðurinn að þessum einkennilega sefandi gjörningi sem öskrar á fullkomnunarsinna og sefar þá sem þrá samstæður í lífinu.
Listaverkið unnu þeir félagar fyrir hollenska dagblaðið De Volkskrant, en ritstjóri fór þess á leit við tvíeykið að þeir félagar hönnuðu ljósmyndaverk við heimildarseríu sem birtist í blaðinu og bar yfirheitið MATUR. Úr varð súrrealískur matargjörningurinn sem minnir mest á máltíð geimfara; 98 fullkomnir teningar af óunnum matvælum, allir 2.5 cm x 2.5 cm x 2.5 cm.
Súrrealísk fullkomnun þeirra Lernert & Sander lítur svona út:
Hægt er að kaupa eftirprentun af listaverkinu gegnum vefsíðu þeirra Lernert & Sander sem hafa starfað saman allt frá árinu 2007, þegar þeir framleiddu stuttmynd um misjafnar aðferðir við að melta súkkulaðikanínu.
Þó erfitt sé að gera sér í hugarlund að ljósmyndaverkið sé raunverulegt, staðhæfir listateymið að hver einasti kubbur sé raunverulegur að gerð. Þeir sem vilja festa kaup á útprentuðu og árituðu eintaki eftir hollensku listamennina ættu þó að hafa hraðar hendur á. Ljósmyndin er nefnilega prentuð í takmörkuðu upplagi, eða í einungis 50 eintökum í stærðarhlutföllunum 40 x 50 cm og kostar litlar 500 evrur, eða 74.000 íslenskar krónur á núverandi gengi.
Hér má sjá súrrealíska matarteningana í nærmynd – ótrúlegt alveg: