Löðrandi heit Karlie Kloss í hlutverki klækjakvendis, svitastorkin Taylor Swift, og leðurklædd Lily Aldridge fara með nokkur aðahlutverka í áður óséðu og funheitu myndbandi við nýjasta lag Taylor; Bad Blood sem frumsýnt verður á Billboard verðlaunaafhendingunni sem fram fer nk. sunnudag.
Taylor Swift í hlutverki CATASTROPHE:
Einnig fara þau Lena Dunham, Kendrick Lamar, Jessica Alba, Elle Goulding, Hayley Williams, Zendaya og Haile Steinfield með hlutverk í hádramatísku tónlistarmyndbandinu – en samanlagt leika þau ÞRJÁR persónur sem ganga undir nafninu The Trinity, eða Þrenningin á íslensku.
Karlie Kloss í hlutverki KNOCKOUT:
Ótrúleg eftirvænting ríkir vegna fyrirhugaðrar frumsýningar, en Taylor hefur deilt nokkrum skotum úr myndbandinu sem er kynnt í kvikmyndastíl og enginn annar en Joseph Kahn leikstýrir.
@TaylorSwift er á Twitter:
Karlie Kloss fer með hlutverk Knockout (rothögg) ásamt sjálfri Taylor sem ber nafnið Catastrophe (Hamfarir) en öll umgjörðin og kynningarstiklan minna einna helst á lélega B-kvikmynd frá áttunda áratugnum. Billboard verðlaunaafhendingin fer fram nk. sunnudagskvöld vestanhafs en Swift er tilnefnd til verðlauna í 14 efnisflokkum.
Hér fer Bad Blood stiklan & SYKUR hlakkar til sunnudags!