Raunveruleikastjarnan Khloe Kardashian hefur greint frá því að hún drekki 5 lítra af vatni á daga.
Khloe sem er 30 ára segist hafa byrjað að grennast eftir að hafa byrjað að borða hollan mat og hreyfa sig reglulega.
“Ég þurfti að taka sjálfa mig taki og æfa mig í því að drekka meira vatn. Nú drekk ég 5 lítra á dag. Ég hreyfi mig eitthvað næstum á hverjum degi. Ég hitti þjálfara fimm sinnum í viku og um helgar fer ég á hlaupabretti, hjóla, skokka úti eða geri einhvers konar brennsluæfingar.“
“Ég borða eiginlega allt sem mig langar í en í miklu minni skömmtum en áður. Það er erfitt fyrst en venst svo eftir að þú hefur vanið líkamann á minni skammta.“