Hver kannast ekki við að langa til að vera eins og Sigmundur Davíð? Nú er einfalt, fljótlegt og furðu hagkvæmt að breyta sér í sjálfan leiðtoga þjóðarinnar nánast á einni nóttu með Instant-SDG settinu vinsæla. Í einum handhægum pakka færðu allt sem til þarf til að breytast í alvöru leiðtoga! Þetta er jafn einfalt og að panta pizzu! (með einhverju algengu áleggi, ostagotti og 2ja lítra kókbrúsa).
Villandi leiðbeiningar á hæpinni íslensku fylgja.
Í settinu er:
1. Falsað prófskírteini frá viðurkenndum háskóla.
2. Radarvari
3. Árgangssafn af Miller Lite-bjór
4. Áskrift að Bændablaðinu
5. Munnþurrkusafn vel með farið.
6. Stakir skór – margar gerðir
7. Greinargott kort af Skagafirði
8. Eyðibýli á Íslandi öll 6. bindin
9. Óopnaður gluggapóstur eitt kíló.
10. Gimbur undan þrílembu