Nautið
Það eru góðar líkur á að þú vindir þér beint að efninu í rúminu. Hægt er að stóla á nautin í kynlífi og þau eru mjög gjafmild. Trúboðinn er þín staða. Neinei, þetta er ekkert sérstaklega kinkí, en hey, þetta afgreiðir málið býsna örugglega.
Sporðdrekinn
Sporðdrekinn er mjög tilraunakenndur þegar kemur að kynlífi og þessvegna mælum við með sjóðheitu stellingunni “V for Vixen”. Þú liggur á bakinu uppi á einhverju háu yfirborði; skrifborði, þvottavél eða bara hverju sem er. Maðurinn stendur milli fótleggja þinna. Þú setur annan fótinn yfir öxlina á honum og heldur svo utan um hnakkann á honum, lyftir svo líkamanum upp þannig að þið myndið saman stafinn V! Ójá!
Fiskurinn
Fiskurinn er rómantískur og elskar að vera fíngerður í ástarlotum. Næst þegar það hitnar í kolunum hjá þér skaltu prófa “The Wow-Him Powwow”. Láttu manninn setjast með krosslagðar fætur. Þú sest svo ofan á hann og þá byrjar fjörið. Þetta er mjög náin stelling sem þú munt elska.