Við erum öll búin að borða ljúffengan mat að undanförnu … og mikið af honum. Það er allt í lagi! Það er sjálfsagt mál að leyfa sér að njóta alls þess sem frídagarnir hafa upp á að bjóða í faðmi fjölskyldu og vina. Á hinn bóginn er alls ekki vitlaust að mæta haustinu af krafti og byrja snemma að hreyfa sig enda jákvæð áhrif hreyfingar á andlega heilsu margsönnuð.
Eftirfarandi sjö æfingar er tilvalið að framkvæma heima við í morgunsárið … þær eru líka svo skemmtilegar!
1. Vekjaraklukkan hringir, þú rumskar og slærð til hennar á náttborðinu. Á meðan þú snoozar skaltu hrista blóðið í fótleggina.
2. Ókei. Nú ertu komin framúr, andfúl og hey, kannski pínu mygluð – það er ekki glæpur! Taktu framstig inn á baðherbergi svo þú getir aðeins lappað upp á grímuna.
3. Blóðrásarkerfið er að vakna, dömur mínar og herrar! Tvisvar sinnum 20 jumping jacks inni í eldhúsi og þá ertu raunverulega vöknuð.
4. Kaffipokinn er uppi í hillu. Gríptu næsta stól og taktu 30 uppstig á hann. Sjáumst síðar, læraspik! Takk fyrir samveruna!
VATNSPÁSA ALLIR SAMAN!
5. Kaffivélin suðar. Refsaðu nú stólnum pínu meira og taktu 20 þríhöfðadýfur. Ójá!
6. Koffín – tékk! Hlauptu nú á staðnum í 30 sek. 30 SEKÚNDUR! Það er ekki neitt! Þú ert óstöðvandi í dag!
7. Obbosí. Klukkan tifar. Gerðu nokkrar laufléttar hnébeygjur á meðan þú hugsar um vinnudressið í dag. Þú sérð ekki eftir því!
Nú skaltu vippa þér undir sturtuna. Við viljum að samstarfsfólkið sjái árangurinn af dugnaðinum en það þarf ekki að finna lyktina af honum er það?