Justin Bieber póstaði mynd af fallegri stúlku til tæplega 50 milljóna aðdáenda sinna á Instagram og sagði: ‘OMG who is this!’
Allt ætlaði um koll að keyra í leitinni að stúlkunni en Bieber kom henni á kortið á mánudaginn var.
Komið hefur í ljós að um 17 ára spænska stúlku er að ræða – Cindy Kimberley, en hún býr á Costa Blanca sem er rétt hjá Benidorm á Spáni. Þar starfar hún sem barnfóstra og rukkar um fimmhundruð kall á tímann.
Leitin að „wolfiecindy“ eins og hún kallar sig á Instagram fór fjöllum hærra þar sem erfitt var að finna stúlkuna sem falin var bak við önnur nöfn á samfélagsmiðlunum.
Vissulega um gullfallega stúlku að ræða, en athyglin sem hún fékk óumbeðna frá poppgoðinu varð þess valdandi að hún sendi út yfirlýsingu á Instagram þar sem hún sagði að þetta væri of mikið fyrir hana.
Þúsundir reikninga í hennar nafni hafa poppað upp á Netinu – enda eflaust margir sem myndu kjósa athyglina frá Justin Bieber…