Glitrandi alskegg; gullslegin yfirvaraskegg og glimmerskreytt karlmenni flögra nú sem aldrei fyrr á Instagram og ber ekki á öðru en að glamúrinn verði allsráðandi nú í desember. Í það minnsta þykir ægilega svalt að opna glimmerdolluna og strá undir hendur sér þessi jólin og nú eru fúlskeggjaðir karlar farnir að renna hýru auga til glittískunnar líka.
Sjá: Glimmerskrýddir og kafloðnir handakrikar koma rótsterkir inn fyrir jólin – STREET STYLE
Vissulega höfðar glimmerinn ekki til allra og glittískan fer misvel í menn, en þeir hinir huguðu – sem þora að ríða á vaðið, líta ægilega smekklega út og eru gott ef ekki bara örlítið sexí. Á vefnum Bored Panda má sjá brot af því besta sem ber á Instagram; glitskrýdd karlmenni með glott á vör og gullslegnar … tungur.
Spurningin er þá sú; myndir þú þora?