Hvernig væri að búa til heilsusamlegt konfekt um jólin? Þetta er afar einfalt og slær í gegn meira að segja hjá íhaldssömustu jólasveinum!
þetta þarftu:
5 dl þurrkaðar steinlausar döðlur
3 dl möndlur
1 dl valhnetukjarnar
1 dl haframjöl
nýkreistur appelsínusafi og rifinn börkur úr 1/4 appelsínu
1 vanillustöng
½ tsk kanel
smá svartur pipar
¼ tsk múskat
2-3 mtsk kókosolía eða möndluolía
Ef vill: gojiber, kókosmjöl, kakó, lakkríssýróp allt eftir smekk.
Svona býrðu konfektið til:
- Setjið döðlur, möndlur, valhnetur, haframjöl, appelsínusaft og börk, innan úr vanillustönginni,kanel, pipar, múskat og olíuna í matvinnsluvélina.
- Látið vélina ganga í nokkrar mínútur þar til allt hefur samlagast vel.
- Rúllið deiginu í litlar kúlur og veltið þeim upp úr kókosmjöli, eða kakói, rifnum gojiberum, hnetumylsnu. Fyrir þá sem elska lakkrís má blanda smávegis af lakkríssýrópi í deigið.