Jamie Foxx er niðurbrotinn í sjóðheitri ballöðu þar sem stóðfolinn sjálfur flytur ljúfsáran óð til ímyndaðrar unnustu sem skilur hann eftir við altarið, en melódían ber nafnið In Love By Now og er að finna á nýjustu breiðskífu Foxx, Hollywood: A Story of a Dozen Roses, sem út kom fyrr á þessu ári.
Söguþráðurinn rekur sára atburðarás á sjálfan brúðkaupsdaginn, en George Lopez fer með hlutverk prestsins gefa á hjónin saman og það er engin önnur en Nicole Scherzinger sem flýr eigin örlög á ögurstundu og kastar frá sér brúðarvendinum.
Ekki er langt síðan gullbarkinn, stórleikarinn og kyntáknið Jamie Foxx sór og sárt við lagði að hann ætti ekki í kynferðissambandi við Katie Holmes, fyrrum eiginkonu Tom Cruise en hann hefur verið bendlaður við ófáar glæsikonur gegnum tíðina, án þess þó að ganga nokkru sinni í hnapphelduna. Foxx hefur þannig löngum þótt annálaður kvennamaður og því magnað að sjá Foxx flytja jafn sáran óð um vonbrigði í einkalífinu.
Ljúft í vikulok og verðug áminning þess að kyntákn geta líka farið halloka í einkalífinu: