Kendall Jenner sýnir sjúklega danstakta í auglýsingaherferð Balmain og H & M sem kynnir sérstaka viðhafnarlínu hátískuhússins sem verður fáanleg frá og með 5 nóvember sl. í vefverslunum H & M víða um heim.
Myndbandið, sem sýnir þær Kendall, Jordan Dunn og Gigi Hadid taka danseinvígi við harðvítuga neðanjarðarlestarfarþega, virðist gerast langt inni í framtíðinni og fer sjálfur Olivier Rousteing, listrænn stjórnandi Balmain tískuhússins með lítið en veigamikið hlutverk, sem stjórnandi heiftugra danseinvíganna.
LOKSINS! – Hér er BALMAIN línan fyrir H & M sem kemur í verslanir þann 5 nóv!
Hér má sjá Kendall leiða dansherinn um borð í neðanjarðarlest frá framtíðinni – en fyrir neðan myndbandið sjálft má sjá Behind the Scenes af upptökum á auglýsingaherferðinni … og við bíðum í óþreyju eftir 5 nóvember!