Enn er tími aflögu til að smella í fremur ógeðfellda drykki fyrir kvöldið og þó hér sé minnst á frosna ísmola, er enn tími til stefnu ef hraðinn er hafður á! Það er sjálf Martha Stewart sem á heiðurinn að þessum ógeðfellda, áfenga drykk og ritstjórn leikur forvitni á hver þorir að prófa … en þessi mun í sérstöku uppáhaldi hjá okkur í dag!
Hreint út sagt viðbjóðslega góður vodkakokteill með kolsvörtum lakkrísklaka og sítrónutvisti; þessi er forvitnilegur og skiptir litum, en drykkurinn, sem er alveg litlaus í byrjun, fer að taka á sig svartan lakkríslit þegar klakarnir fara að bráðna …
KOLSVARTIR LAKKRÍS ÍSMOLAR – UPPSKRIFT:
Martha vill meina að best sé að mylja niður anisfræ, (hennar uppskrift leggur til 2 matskeiðar af muldum anisfræjum) en við hér á ritstjórn grípum hins vegar apótekaralakkrísinn og myljum með ágætu mortéli. Þá þarf líka svartan matarlit í dýrðina, en hér fer aðferðin sjálf:
4 bollar af vatni
2 msk mulin anisfræ (svartur apótekaralakkrís)
4 dropar svartur matarlitur
Sjóðið vatnið og hrærið vel saman við mulin fræin (apótekaralakkrísinn) í litlum potti. Sigtið mulninginn (fræin / mulinn lakkrísinn) að lokum frá vatninu sjálfu, sem hefur verið litað af matarlit og hellið í ferköntuð ísmolabox. Frystið undir eins og berið fram þegar drykkurinn er framreiddur, að nokkrum klukkutímum liðnum.
LAKKRÍSLÓN MEÐ VODKATVISTI OG DÍSÆTRI SÍTRÔNU:
Tvöfaldur – Vodki
Einfaldur – Þunnfljótandi sýróp (sjá ágæta uppskrift hér)
Tvær matskeiðar – Ferskur sítrónusafi
Lakkrísmolar beint úr frystinum
Blandið vodka, sírópi og sítrónusafa saman í kokteilhristara og hristið vel. Drykkurinn ætti að duga fyrir tvo í lág whiskeyglös, en þegar blandan hefur verið hrist og hellt í glösin, eru svartir ísmolar settir út í glösin og fyllt upp með sódavatni.
Skemmtilegt getur verið að skreyta með stífri lakkrísstöng, sem stendur upp úr glasinu, en drykkurinn – sem er litlaus í fyrstu – fer að taka á sig svarta mynd, þegar klakarnir fara að bráðna.