Selena Gomez fetar í fótspor sjálfrar Taylor Swift á sviði undirfatasýningar Victoria Secret nú í desember, en ásamt Selenu stíga þau Rihanna og Weeknd á svið.
Sýningin fer fram þann 8 desember nk. og binda aðdáendur vonir við að Rihanna muni LOKS frumflytja nýja smáskífu af fyrirhuguðu albúmi sínu, ANTI, sem hefur vakið upp mikinn styrr og eftirvæntingu en útgáfudagur hefur ekki ekki verið gefinn upp.
Sjá einnig: Selena Gomez situr fyrir kviknakin og gefur út nýju smáskífuna Same Old Love
Ef marka má glamúr undanfarinna ára, er stórfengleg sýning í vændum en hér að neðan má sjá brot af sýningu Victoriu Secret í sl. desember, þegar þau Taylor Swift, Ariana Grande, Ed Sheeran og Hozier tróðu upp við ómældan fögnuð. Má því jafnvel segja að dýpri sálarflutningur svífi yfir vötnunum í ár.
Sjá einnig: Rihanna með SJÚKLEGA flotta HNÉSOKKA á markað
Hér má sjá brot af sýningunni í fyrra – en Taylor Swift treður upp þegar 8.40 mínútur eru liðnar: