Það verður mikið um að vera á Miðnæturopnun Smáralindar í dag! Förðunarvörumerkið Maybelline ætlar að nýta tækifærið og opna Snapchat rásina sína formlega á viðburðinum og gefa heppnum aðdáendum sem heimsækja Smáralindina tækifæri til að vinna The Nudes pallettuna og nýja Lash Sensational Intense Black maskarann.
Bjútísnappararnir Gyða Dröfn ætlar að opna snapchat rás merkisins formlega í dag klukkan 19:00. Þær dömurnar ættu að vera mörgum snapchat aðdáendum kunnar en þær eru sjálfar með mjög vinsælar rásir þar sem þær deila góðum förðunarráðum.
Gyða Dröfn og Helena verða inní Hagkaup í Smáralind frá klukkan 19:00 og taka þar á móti Maybelline aðdáendum og bjóða þeim að gerast gestasnapparar hjá Maybelline. Gestasnapparar kvöldsins geta fengið glæsileg verðlaun en 10 snapparar verða valdir af handahófi í lok kvöldsins úr öllum snöppunum og geta þær unnið nýju augnskuggapallettuna The Nudes og nýja Lash Sensational Intense Black maskarann. Það sem gestasnappararnir þurfa að gera er að takaupp stutt video þar sem þær segja frá sinni uppáhalds Maybelline vöru.
Finnið Gyðu Dröfn og Helenu Reynis í kvöld inni í Hagkaup Smáralind og munið að adda maybellinervk á Snapchat. Inni á rásinni fáið þið að kynnast þessum glæsilegu vörum ennþá betur, skyggnast á bak við tjöldin og fylgst með hæfileikaríkum gestasnöppurum kenna góð ráð.