Hér er komnar ljúffengar og heilnæmar morgunverðarpönnukökur (eða lummur, eins og þær amerísku myndu útleggjast á íslenskri tungu) – en þessi uppskrift er trefjarík og talsvert hollari en hefðbundnar hveitipönnukökur.
Í þær fer fínmalað haframjöl – i bókstaflegri merkingu, því mjölið þarftu að mala í matarvinnsluvél eða kaffikvörn, áður en þú bætir þeim út í blönduna. Athugaðu þó að uppskriftin er ekki endilega glútenfrí, nema þú veljir glútenfrítt haframjöl.
U P P S K R I F T:
¼ bolli haframjöl (malað í matarvinnsluvél eða kaffikvörn)
1 stórt egg
1 tsk lyftiduft
½ tsk matarsódi
½ tsk salt
1 bolli (amerísk mælieining) möndlumjólk
1 msk lífrænt hunang
2 msk grísk jógúrt
1 tsk kanell
1 niðurskorið epli
- Setjið haframjölið, lyftiduftið, matarsódann og saltið í stóra skál. Bætið nú öllum hinum innihaldsefnum, nema eplinu – saman við og hrærið vel saman þar til deigið er orðið slétt og áferðarfallegt.
- Hitið upp steikarpönnu á meðalhita á hellu og spreyjið með bökunarspreyji, ef pannan er ekki teflonhúðuð.
- Hellið u.þ.b. ½ bolla (amerísk mælieining) á pönnuna. Bíðið þar til loftbólur taka að myndast á yfirborði pönnukökunnar og leggið þá örfáar eplasneiðar á pönnukökuna. Leyfið pönnukökunni að bakast örlítið lengur og snúið henni svo við. Bakið vel á báðum hliðum, eða þar til pönnukakan er orðin gylltbrún og falleg beggja megin.
- Berið pönnukökurnar fram heitar; með pönnusteiktum eplasneiðum og lífrænu hunangi – ágætt er að bæta örlitlu grísku jógúrti ofan á pönnukökuna!