Þó myndbandið sé í léttari kantinum og írskir karlmenn séu afskaplega hrífandi í framkomu, er kannski dálítið til í því hversu flóknar og óskiljanlegar konur eru að gerð og lögun. Að ekki sé minnst á eðli kynlífsleikfanga sem falla konum í geð.
Hvaða tilgangi þjónar til dæmis Rampant Rabbit og af hverju er Vibraplug svona skrýtinn í laginu? Til hvers eru þessi tæki eiginlega notuð og hvernig á að útskýra notkun þeirra í stuttu máli? HVAÐ eiga þessir menn eiginlega að halda?
Er nema von að karlmenn streði við að skilja konur?