Brúðartískan hefur tekið dásamlegum breytingum undanfarin 100 ár og í myndbandinu hér að neðan má sjá hvernig kjólarnir hafa þróast í takt við tíðarandann. Allt frá blúndum skrýddu hálsmáli sem þótti ægifagurt í kringum 1915 og til púffaðra kjólerma áttunda áratugarins; hvaða áratugur höfðar allra mest til þín?