Pluz Size fyrirsætan Ashley Graham kom, sá og sigraði á pöllum tískuviku í New York nú í vikunni, þar sem hún fór fyrir föngulegum hópi gullfallegra kvenna með mjúkar línur sem allar kynntu undirfatalínu Ashley og Addition Elle.
Bogadregnar línur, mjúk læri og miklar mjaðmir áttu pallana; bústnir barmar og glæsilegar konur í gullfallegum undirfatnaði Ashley, sem er sjálf í stærð 16 og hratt af stað samfélagsmiðlaherferðinni #IAmSizeSexy fyrir skemmstu.
Þess má geta að Ashley varð fyrsta Plus Size fyrirsætan til að prýða forsíðu Sports Illustrated og hefur vakið mikla athygli fyrir jákvæða framgöngu sína í hátískuheiminum, en fyrirsætan og fatahönnuðurinn hefur einnig verið óþreytandi í baráttu sinni fyrir jákvæðari líkamsvitund kvenna.
Glæsileg stúlka og gullfalleg lína – hér má sjá viðtal POPSUGAR við Ashley að tjaldabaki: