Þessi sláandi sorglega og hryllilega ljósmynd var tekin af norska ljósmyndaranum Kerstin Langenberger á Svalbarða fyrir skömmu síðan, en Kerstin deildi ljósmyndinni, sem er af grindhoruðum ísbirni, á Facebook:
Kerstin segir að þrátt fyrir að vísindamenn segi að ísbjarnastofninn á Svalbarða sé í ágætu jafnvægi, sjái hún reglulega horuðum og glorsoltnum birnum bregða fyrir á ísnum.
„Ég verð vitni að því hvernig jöklarnir hopa því sem nemur hundruðum metra á hverju einasta ári. Ég sé ísjakana hverfa á methraða fyrir augunum á mér. Já, ég hef horft á eftir ísbjörnum í góðum holdum – en ég hef líka sé deyjandi og glorsoltna ísbirni. Birni sem ráfa meðfram ströndinni í leit að æti, birni sem reyna að veiða hreindýr sér til matar, borða egg, mosa og jafnvel þara.“
„Ég hef áttað mig á því að þeir ísbirnir sem eru í góðum holdum eru karlkyns dýr sem halda sig á fljótandi ísbreiðum árið um kring. Birnurnar, hins vegar, sem fara á land til að fæða húnana, eru oftar grindhoraðar. Fljótandi ísbreiðurnar færast fjær ströndu og lengra norður á bóginn á hverju ári og þannig verða birnurnar strandaglópar á landi þar sem ekki mikið fæði er að finna.“
Ástæða þykir til að fylgjast grannt með ísbjarnastofninum og þannig hafa ísbirnir nú hafnað á rauðum lista Alþjóðasamtökum náttúruverndar og dýralífs, eða IUCN Red List eins og það nefnist á frummálinu, en stofninn er talinn í ákveðinni hættu vegna rýrnunar. Þannig hefur rýrnun ísbjarna (eða fækkun ísbjarna) numið heilum 30% undanfarin 45 ár og er þar einkum hlýnunar jarðar og bráðnunar ísjaka um að kenna.
Þá eru framtíðarhorfur fremur myrkar. Þannig segir IUNC um stöðuna: