Hér er komin lúxusuppskrift fyrir lata kokka; nefnilega guðdómlegar ostaköku-brownies með himneskum vanillukeim. Þetta er svo auðvelt að það er ekki hægt að klúðra uppskriftinni. BARA EKKI HÆGT! Þetta er skotheld uppskrift fyrir alla í tímaþröng, sem langar í sætindi!
UPPSKRIFT OG AÐFERÐ:
#1 – Hráefni!
Byrjaðu á því að næla í tilbúið Brownies mix í næstu matvöruverslun. Hrærðu blönduna til eins og segir á pakkanum. Þeyttu 230 grömm af hreinum rjómaosti með handþeytara, bættu því næst 55 grömmum (¼ bolla) af strásykri við rjómaostinn og þeyttu saman þar til blandan er orðin mjúk og áferðarfalleg. Bættu að lokum einu vænu eggi í þeyttan rjómaostinn og ½ tsk af vanilluþykkni.
#2 – Bökunarleiðbeiningar!
Dreifðu brownies-blöndunni í lítið og ferkantað kökuform. Dreifðu þeyttum rjómaostinum ofan á með skeið og blandaðu vel saman að lokum (sjá myndband) með bakhliðinni á skeiðinni. Ekki hræra of mikið! Stingið inn í ofn og bakið við 190 gráður í 35 – 40 mínútur, eða þar til rjómaosturinn verður gullinbrúnn.
Berið fram, lifið fyrir augnablikið og njótið í botn!
Easy Cheesecake Fudge Brownies
Posted by Tasty on Monday, September 14, 2015