Stómapokar, beinstífir tittlingatoppar og uppblásin dollaramerki; öskrandi unglingar á hjólabrettum og loðnir pinnahælar. Allt þetta og meira mátti bera á augum á súrealísku sýningarkvöldi VFiles á tískuvikunni í New York í gærkvöldi, þar sem vor- og sumartíska framsækinna og ungra jaðarhönnuða var kynnt til leiks.
Namilia Spring / Summer 2016 línan er alsett tittlingum
VFiles er hluti af tískuvikunni sem haldin er tvisvar sinnum á ári, en þar má sjá – meðfram hefðbundinni hátísku – kvöldkjólatísku og herralínu sem myndi hæfa Lady GaGa ágætlega á sviði, en beinstífir tittlingar sem daðrandi hvíldu við My Little Pony, brúnir stómapokar sem prúðklæddir herramenn sýndu með stolti og svo aftur dónalega stutt minipils bar hæst í borg tískunnar í gærkvöldi.
Namilia Spring / Summer 2016
Fleiri svipmyndir af tískupöllunum í gærkvöldi má t.a.m. skoða HÉR en við látum okkur hins vegar nægja svipmyndir af framúrstefnulegri tískulínu NAMILIA tískuhússins, þar sem tittlingar fóru hamförum á pöllunum og fyrirsæturnar gengu um með upplásnar marglyttur, flauelshjörtu og kvöldkjóla sem bera allt.