Að svindla á prófum er ekkert nema hrein og klár listgrein. Allir sem náð hafa langt á hvaða sviði sem er án allra undantekninga og frávika, voru að svinda. Prófasvindl hefur verið mikið í umræðunni í vikunni og þá sérstaklega í tengslum við drengi sem svindluðu í jólaprófum í Verzló. Hér eru 5 leiðir til að svindla á prófi – like a boss (lesist: Verzlingur).
Ef þú ert mikið fyrir próf þá mælum við með jólaprófunum Hvaða íslenski jólasmellur ert þú? og Hvaða 90’s persóna úr Jóladagatali Sjónvarpsins ert þú?
1. Peysutrikkið
Þessi verzlingur klæddi sig í uppáhaldspeysuna sína, fyllti hana með með einhverju (sem við vonum reyndar að sé gervihandleggur – eða þriðji alvöru handleggurinn) og notaði símann sinn til að leita að svörunum undir borði, undan peysunni. Fagmaður þarna á ferð.
2. Reiknivélartrikkið
Hér er hreinlega verið að gefa þér svörin á silfurfati. Hvaða formúlur sem þú þarft að kunna utanbókar, eða hvaða sönnun sem þú þarft að leggja á minnið fyrir stærðfræðipróf geturðu sett inn í minni flestra grafískra reiknivéla. Einfalt! Verzlingar hafa stundað þetta í fjölda ára.
3. Vatnsflöskutrikkið
Það er mjög mikilvægt að drekka mikið vatn þegar maður er í prófum. Vatnið hefur góð áhrif á heilsuna og hjálpar líkamanum að vera í sínu besta formi. Vatnsflöskur eru þess vegna tilvaldar til að geyma mikilvægar glósur sem erfitt er að leggja á minnið. Ekki er kennarinn að fara að banna þér að drekka vatn!
4. Ofnæmistrikkið
Þetta er sérlega sterkur leikur á vorönn þegar frjókorn eru komin í loftið. Þú nýtir leikhæfileika þína í að gera þér upp hræðilegt tilfelli af gróðurofnæmi, eða hvaða ofnæmi sem er. Svo ertu að sjálfsögðu með glósurnar skráðar í snýtibréfið.
5. Plásturstrikkið
Allir eiga það nú til að slasa sig og alls ekki óalgengt að fólk sé með plástra um allan líkamann. Verzlingar koma glósum alltaf fyrir innan á plástrum, jafnvel þó að þeir séu ekki einu sinni nálægt því að vera á leiðinni í próf.