Hversu mörgum hitaeiningum brennir þú á rómantísku stefnumóti?
Göngutúr
Ef þið leiðist og labbið rólega saman stutta vegalengd þá er það rómantískt og þú brennir um 28 hitaeiningum.
Gamnislagur
Hver á að fá fjarstýringuna eða gamnislagur í sófanum yfir einhverju kjánalegu getur kynnt undir rómantíkina og þú brennir um 50 hitaeiningum í u.þ.b. 5 mínútna slag.
Í sturtu saman
Allir vita hvað rennandi vatn getur gert fyrir rómantíkina í sambandinu en vissir þú að 15 mínútna sturta þar sem þið eruð saman brennir um 40 hitaeiningum.
Forleikur
Sumir vilja meina að hann sé ofmetinn en 10 mínútna forleikur fær þig til að brenna um 25 hitaeiningum.
Nudd
Ef þú nuddar hann í um 10 mínútur þá brennir þú um 48 hitaeiningum og oft leiðir nautnafullt nudd til skemmtilegrar stundar í rúminu.
Kelerí
Gott kelerí er heldur betur grennandi. Ef þú kelar í um 20 mínútur þá brennir þú um 59 hitaeiningum.
Munnmök
Þú brennir 100 hitaeiningum á klukkustund ef þú tottar hann. Okey, við vitum að þú gerir það kannski ekki í heila klukkustund, en hey við vildum bara fá þig til að hugsa stórt…
Þiggja munnmök
Þú eyðir um 80 hitaeiningum á klukkustund við það eitt að þiggja munnmök og er þetta ein „besta“ leiðin til að brenna hitaeiningum. Sennilega mun hann ekki hafa úthald í heila klukkustund en maður má láta sig dreyma.
„Quickie!
5 mínútna „quickie“ eyðir 25 hitaeiningum.
Samfarir
Hún ofan á í 15 mínútur brennir um 75 hitaeiningum. Strákar elska þessa stellingu því það gefur þeim tækifæri til að horfa á hvað þú ert falleg.
Það er því ljóst að rómantísk kvöldstund getur verið á við góða æfingu í ræktinni og því ekki að æfa heima alla þessa viku. Sendu þetta á hann og athugaðu hvort hann sé ekki til?