Poppstirnið Ariana Grande á aðdáendur um gjörvallan heim og eru sumir þeirra klikkaðari en aðrir. Einn er t.d. sérstaklega gjafmildur og það er hinn 29 ára gamli Tim Normandin frá Massachusetts. Að undanförnu hefur hann t.d. sent henni..
- Grasker sem er 21 kg að þyngd
- Átta ilmkerti frá Yankee Candle
- Kisu-og hundadagatöl
- Speglasett úr K-mart
- 200$ ökklaband frá Kay Kewelers
- Stein úr hvítu fjöllunum í New Hampshire
Einhverra hluta vegna er Grande síður en svo uppnumin yfir gjafaflóðinu. Hún lét plötufyrirtækið sitt hafa samband við lögreglu sem gerði manninum að hætta að senda henni gjafir, ellegar ætti hann yfir höfði sér kæru fyrir áreiti.