Við rákumst á þessar stöðuuppfærslur frá Lindex á Facebook og leggjum til að sá sem sér um samfélagsmiðlana þeirra verði tekin á teppið og settur í annað djobb. Hvað er í gangi? Myndir af smástelpum og hash-taggið # besexy? Hörmung!
UPPFÆRT! Lindex hafði samband við okkur og bað um að við segðum frá því að við hefðum blörrað andlitið af barninu á myndinni hægra megin. Okkur er ljúft og skylt að gera það. Við sáum ekki ástæðu til að dreifa myndinni þar sem barnið væri þekkjanlegt.
Lindex vildi ennfremur koma á framfæri því að þetta hashtag #besexy á við um undirfatalínu sem þeir selja og hefði aldrei átt að birtast við mynd af börnum. Lindex harmar þessi mistök.